Það er kominn fimmtudagur og ég þarf ekki að vinna í kvöld. Elmar coworker ætlar að taka vaktina í kvöld þannig að ég er að alvarlega að velta fyrir mér að kíkja í bíó. Svo er bara helgin framundan, ég reikna með svaka fylleríi föstudags- og laugardagskveld. Það er sko vísó í uppeldisfræði föstudagskvöld ;) Marton mætir! Svo er Karla kvöld ala Glitnir laugardagskvöld. Kvöldmatur og drykkir í Fridays svo bara Keiluhöllin. Marton út!
Thursday, October 4, 2007
Saturday, September 29, 2007
Færsla nr.8
Var veikur á föstudaginn. Helvitis burgerinn frá því á fimmtudaginn fór alveg með mig! Þetta er ekkert annað en matareitrun (kannski). Ég var nefnilega farinn að hugsa um að fara í réttir með honum Lárusi. Það hefði sko verið gaman. Smala hrossum og svo sveitaballa! Það bara gerist ekki betra! Ég sem er þekktur fyrir að vera æðislegur dansari, sérstaklega á böllum út í sveit ... jújú rétt hjá ykkur á sveitarböllum :) að sveitarballa, jújú þetta er sko sagnorð Íslendinga og ég veit sko allt um það ... Ef ekkert betra gefst, það er það vonandi bærinn í kvöld. Spurning hvort maður kíki á þetta þýskuverkefnið ... né! Marton út!
Thursday, September 27, 2007
Færsla nr.5
Góðan daginn, allan daginn :) Marton bara mættur í vinnuna, fjör og læti ... NOT! Það voru bara þeir Gunnar og Lárus mættir, öll önnur sæti laus. Í dag verður skemmtilegur dagur án efa. Ég er með skemmtilegan búnka við hliðina og það verður eflaust uppbyggjandi að lesa yfir hann. Veðrir eins og undanfarna daga er blautt. Bless í bili!
Wednesday, September 26, 2007
Færsla nr.4
Það var bara mjög gaman í tímanum áðan. Forstjóri Iceland Air kom í fyrri tímanum og fór yfir sögu fyrirtækisins, m.a. hvernig fyrirtækið alþjóðavæddist og fór í útrás. Hann kom með mjög skemmtilegar staðreyndir eins og t.d. að Icelandair er stærsta flugfélag í heimi m.v. höfðatölu og að Icelandair flýgur oftar til Bandaríkjanna en flugfélögin í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi til samans! Þannig að ÁFRAM ÍSLAND! Í seinni tímanum þá kom forstjóri Samskipa og var með fyrirlestur um fyrirtækið og hvernig það alþjóðavæddist. Ég er búinn að fara til hans á kynningu þar sem farið var yfir þetta það sama, en þetta var fín upprifjun :) Núna er ég kominn í vinnunna og það er bara brjálað að gera ;) ... ég á eftir að vinna til 21:30, JÍBBÍ!!!! Marton out!
Færsla nr.3
Sko þýskutíminn í morgun gekk bara mjög vel, við lærðum helling um forsetningar og orðasamband forsteninga og sagna :) Nú byrjar fljótlega tími sem fjallar um alþjóðavæðing íslenskra fyrirtækja þannig að ég er spenntur. Svo mun leiðin liggja til höfuðstöðvar Glitnis þar sem enn einn spennandi vinnudagur bíður mín! Dagurinn verður langur en vonandi skemmtilegur. Eitt í lokin, hvað með þetta trafík í borginni á morgnanna. Stundum tekur mig 40 mín. að komast í vinnu eða skólann og stundum 15 mín. þrátt fyrir að ég legg af stað alltaf á sama tíma ... jæja fuck it! Ég er hættur í bili. Virðing MÚHAHAHA!
Subscribe to:
Posts (Atom)

